Fara í efni

Ársfundur Brúar verður haldinn 13. maí

Ársfundur Brúar Lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 14:00 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42, Reykjavík.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2023
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
  5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
  6. Kynning á breytingum samþykktum sjóðsins
  7. Önnur mál

Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum og eru hvattir til að mæta á fundinn.