Beint á leiðarkerfi vefsins

Samskipta- og siðareglur LSS

 

Samskipta- og siðareglur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga

Samskipta- og siðareglur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga (LSS) eru settar til að styrkja enn frekar fagmennsku stjórnar og starfsmanna og vera þeim sem vinna í þágu sjóðfélaga til leiðbeiningar í starfi.

Starfsemi LSS byggir annars vegar á lögum og reglum og hins vegar eigin samþykktum sem hlotið hafa staðfestingu Fjármálaeftirlitsins.  Stjórn og starfsmenn fylgja þeim í hvívetna.

Reglur þessar eru hluti af starfsskyldum stjórnarmanna og starfsmanna LSS.

Brot á reglum þessum geta varðað áminningu eða uppsögn.

Það er hlutverk stjórnar og framkvæmdastjóra sjóðsins að leysa úr álitamálum sem upp kunna koma.

Samskipta- og siðareglur skulu endurskoðaðar reglulega í samráði starfsmanna og stjórnar LSS og skulu þær ávallt vera aðgengilegar á heimasíðu sjóðsins.

 

REGLUR UM GÓÐA STARFSHÆTTI

  • 1. Stjórn og starfsfólk LSS leggja sig fram um að sjóðurinn sinni hlutverki sínu sem er að standa vörð um lífeyrisréttindi sjóðfélaga. Haft skal að leiðarljósi að sjóðfélagar, sveitarfélög og samtök launafólks geti ávallt treyst því að allar ákvarðanir og undirbúningur þeirra hafi verið eins vandaður og frekast er unnt.
  • 2. Í störfum sínum leggja stjórn og starfsmenn áherslu á heilbrigða skynsemi og dómgreind og hafa ávallt að leiðarljósi hagsmuni LSS og þeirra sem aðild eiga að sjóðnum.
  • 3. Stjórn og starfsmenn skulu leitast við að skapa góðan starfsanda innan sjóðsins. Gengið skal fram af hófsemi og fyrirhyggju og unnið samkvæmt bestu samvisku.
  • 4. Stjórn og starfsmenn sjá til þess að stefna, verkferlar og vinnulag endurspegli samskipta- og siðareglur LSS. Þá skulu áherslur í starfsmannamálum stuðla að því að efla siðferðisvitund starfsmanna. Stjórn og starfsmenn vinna saman á faglegan hátt, taka þátt í að marka sjóðnum stefnu og móta daglegt starf hans.
  • 5. Stjórn og starfsmönnum LSS ber að viðhalda starfshæfni sinni og fylgjast með nýjungum og umbótum hver á sínu sviði.

 

SIÐAREGLUR

  • 6. Stjórn og starfsfólk LSS leggja áherslu á jafnræði og mismunar ekki sjóðfélögum eða öðrum hagsmunaaðilum sínum, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.
  • 7. Stjórnarmönnum og starfsmönnum er óheimilt að taka þátt í afgreiðslu mála ef ætla má að draga megi óhlutdrægni þeirra í efa vegna vensla eða annarra tengsla. Skylt er að vekja athygli á slíkum aðstæðum séu þær til staðar.
  • 8. Stjórn og starfsfólk LSS gætir trúnaðar við sjóðfélaga og aðra hagsmunaaðila. Persónuupplýsingar eru einungis notaðar í málefnalegum tilgangi og aðgengi að slíkum upplýsingum takmarkast af því. Þegar málefni einstaklinga eru til umræðu er fyllstu þagmælsku gætt um einkamál og önnur þau atriði sem leynt skulu fara. Ákvæði um þagmælsku eru áfram í gildi þótt viðkomandi láti af störfum fyrir sjóðinn.
  • 9. Stjórn og starfsmönnum er óheimilt að þiggja gjafir vegna starfa sinna hjá sjóðnum. Undanþegnar þessu ákvæði eru jólagjafir og smærri tækifærisgjafir enda hafi þær enga fjárhagslega þýðingu fyrir viðtakanda og þar af leiðandi engin áhrif á ákvarðanir stjórnar eða starfsmanna. Sé stjórnarmaður eða starfsmaður í vafa um hvort gjöf falli undir þetta ákvæði skal hann leita álits framkvæmdastjóra eða formanns stjórnar.
  • 10. Stjórn og starfsmönnum er heimilt að sækja kynningar- og fræðslufundi um fjárfestingar sem skipulagðir eru af þjónustuaðilum til að afla sjóðnum upplýsinga um fjárfestingartækifæri og valkosti í eignastýringu. Það sama gildir um aðra fundi, ráðstefnur eða samkomur sem hafa augljósa tengingu við hagsmuni og starfsemi sjóðsins. Efni fundanna skal stutt gögnum sem ber að halda til haga í a.m.k. eitt ár. Kalli þátttaka í slíkum fundum á ferðalög skal meginreglan sú að LSS standi straum af uppihaldi og ferðakostnaði.
  • 11. Stjórn og starfsmönnum er óheimilt að þiggja boðsferðir sem ekki tengjast með augljósum hætti hagsmunum og starfsemi sjóðsins.

SAMSKIPTAREGLUR

  • 12. Stjórn og starfsmenn LSS sýna sérhverjum einstaklingi sem sækir til sjóðsins virðingu og áhuga og leitast við að veita ávallt skilvirka og trausta þjónustu. Með sama hætti leitast sjóðurinn við að veita allar þær upplýsingar sem sjóðfélagar eiga rétt á með skýrum og lýsandi hætti.
  • 13. Stjórn og starfsmenn gæta þess að upplýsingar sem sjóðurinn veitir séu réttar og eins nákvæmar og kostur er og byggi á fyrirliggjandi gögnum hverju sinni.
  • 14. Framkvæmdastjóri og stjórnarformaður eru málsvarar sjóðsins og svara fyrirspurnum fjölmiðla með skilvirkum og markvissum hætti í þeim mæli sem lög og reglur heimila.
  • 15. Móttaka á iðgjöldum, úrskurðir um lífeyri og eignastýring felur í sér samskipti við atvinnurekendur, sjóðfélaga, eftirlitsaðila og aðila á fjármálamarkaði og falla því undir reglur þessar.

 

Samþykkt á stjórnarfundi Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga þann 27. september 2010.

 

 



Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00