Um LSS
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga LSS var stofnaður 28. júlí 1998 með samningi á milli BHM og BSRB fyrir hönd hlutaðeigandi stéttarfélaga annars vegar og hins vegar Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd fjölmargra sveitarfélaga. LSS fékk starfsleyfi í desember 1998.
Skylduaðild
Stofnsamningurinn fól sömuleiðis í sér kjarasamning milli hlutaðeigandi aðila þar sem samið var um skylduaðild starfsmanna í hlutaðeigandi stéttarfélögum.
Fulltrúar stofnaðila eiga sæti í stjórn sjóðsins og allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á aðalfundum lífeyrissjóðsins með málfrelsi og tillögurétt um hvaðeina er varðar starfsemi sjóðsins.
Breytingar á samþykktum lífeyrissjóðsins varða skuldbindingar hans gagnvart öllum sjóðfélögum. Þar af leiðandi verða breytingar á samþykktum að hljóta samþykki stofnaðila sjóðsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, BSRB og BHM. Einnig á þeim vettvangi geta allir sjóðfélagar haft áhrif, þ.e. í þeim stéttar- og sveitarfélögum sem þeir tilheyra.
Aðild að LSS
Á milli eftirtalinna aðila er í gildi kjarasamningur um skylduaðild hlutaðeigandi starfsmanna að LSS.
Aðildarfélög BSRB
Samband íslenskra sveitarfélaga og Launanefnd sveitarfélaga
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00












