Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
Hlutverk
Hlutverk sjóðsins er að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt þeim reglum, er greinir í samþykktum sjóðsins. Sjóðurinn starfar í tveimur deildum, A-deild og B-deild.
Sjóðfélagar
Sjóðfélagi er sá sem greitt er fyrir, greiðir eða hefur greitt iðgjald til lífeyrissjóðsins og á hjá honum réttindi. Þeir einir hafa rétt til að greiða áfram til sjóðsins sem voru sjóðfélagar í júní 1998, hafa átt aðild að sjóðnum óslitið frá þeim tíma, eru í eigi minna en hálfu starfi og taka kjör samkvæmt kjarasamningum byggðum á lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna eða kjaraákvörðunum um æðstu embættismenn Reykjavíkurborgar. Hafi iðgjaldagreiðsla sjóðfélaga fallið niður vegna launalauss leyfis eða veikinda á viðkomandi rétt til að hefja aftur greiðslu iðgjalda innan 12 mánaða frá því að greiðsla iðgjalda féll niður.
Óheimilt er að veita móttöku iðgjalda vegna annarra frá 1.júlí 1998 sbr. lög nr. 129 frá 1997.
Aðild að sjóðnum fellur niður er sjóðfélagi fær útborguð réttindi sín í einu lagi eða þau flytjast samkvæmt gr. 19 í annan lífeyrissjóð.
Með lífeyrissjóðslögum var lífeyrissjóðnum lokað fyrir nýjum sjóðsfélögum þann 1.júlí 1998 í samræmi við lög nr. 129 frá 1997.
Reykjavíkurborg hefur annast rekstur sjóðsins frá upphafi þar til 1.júní 1999 að LSS tók að sér aða annast rekstur hans skv. samkomulagi þar um.
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00








