Um Lífeyrissjóð starfsmanna Húsavíkur
Nafn, heimili, varnarþing og eigandi
Nafn sjóðsins er: Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar. Heimili og varnarþing er á Húsavík. Sjóðurinn er eign Húsavíkurkaupstaðar með þeim takmörkunum, sem leiða af ákvæðum þessara samþykkta.
Hlutverk sjóðsins
Hlutverk sjóðsins er að veita sjóðsfélögum elli- og örorkulífeyri og eftirlátnum mökum þeirra og börnum maka- og barnalífeyri, samkvæmt ákvæðum samþykkta.
Sjóðfélagar
Sjóðfélagi er sá sem greitt er fyrir, greiðir eða hefur greitt iðgjald til lífeyrissjóðsins og á hjá honum réttindi.
Þeir einir hafa rétt til að greiða iðgjöld til sjóðsins.
Þeir sem greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Húsavíkurkaupstað eða stofnunum bæjarins, falla undir lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og iðgjaldsskyldir voru til sjóðsins í júní 1998 enda hafi iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma.
Falli iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga samkv. gr. 3.2.1 niður vegna launalauss leyfis eða veikindafjarvista hefur hann áfram rétt til aðildar að sjóðnum svo fremi að hann hefji aftur starf sem fellur undir gr. 3.2.1 innan 12 mánaða frá því að iðgjaldagreiðslur féllu niður.
Starfsmenn stéttarfélaga, og bandalaga þeirra, sem falla undir lög nr. 94/1986, og starfsmenn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, sem eru sjóðfélagar í Lífeyrissjóði starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar er þeir hefja störf hjá ofangreindum aðilum hafa á sama hátt rétt á greiðslu iðgjalda til sjóðsins og þeir sem tilgreindir eru í gr. 3.2.1 í samþykktum.
Þeir sjóðfélagar, sem í júní 1998 greiddu iðgjöld vegna þess að staða eða starfi sjóðfélaga hafði verið lagður niður.
Þeim sjóðfélögum, sem í júní 1998 greiddu iðgjöld til sjóðsins er heimil áframhaldandi aðild að sjóðnum flytjist starfsemi stofunar til ríkisins eða annars opinbers aðila enda ábyrgist launagreiðandi skuldbindingar vegna lífeyris til sjóðsins í samræmi við samþykktir.
Óheimilt er að veita móttöku iðgjalda vegna annarra frá 1.júlí 1998 sbr. lög nr. 129 frá 1997.
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00








