Beint á leiðarkerfi vefsins

Um Lífeyrissjóð Neskaupstaðar

Nafn Sjóðsins og heimili

Sjóðurinn heitir Lífeyrissjóður Neskaupstaðar. Heimili hans og varnarþing er í Fjarðarbyggð. Sjóðurinn er eign Fjarðarbyggðar með þeim takmörkunum, sem leiða af ákvæðum þessara samþykkta.

Hlutverk Sjóðsins

Hlutverk sjóðsins er að veita sjóðfélögum elli- og örorkulífeyri og eftirlátnum mökum þeirra og börnum maka- og barnalífeyri samkvæmt ákvörðun samþykkta þessarar.

Sjóðfélagar

Sjóðfélagi er sá sem greitt er fyrir, greiðir eða hefur greitt iðgjald til lífeyrissjóðsins eða á hjá honum réttindi. Hafi iðgjöld veriði endurgreidd eða flutt burt í annan lífeyrssjóð þá telst viðkomandi ekki lengur sjóðfélagi.

Þeir einir hafa rétt til að greiða iðgjöld til sjóðsins

Þeir sem greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Fjarðabyggð (Neskaupstað) eða stofnunum bæjarins, sjálfseignarstofnanna eða hlutafélaga skrásettra í Neskaupstað sem bæjarfélagið á aðild að og iðgjaldsskyldur voru til sjóðsins í júní 1998 enda hafi iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma.

Falli iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga samkv. gr. 3.2.1. niður vegna launalauss leyfis eða veikindafjarvista hefur hann áfram rétt til aðildar að sjóðnum svo fremi að hann hefji aftur starf sem fellur undir gr. 3.2.1 innan 12 mánaða frá því að iðgjaldagreiðslur féllu niður.

Þeir sjóðfélagar, sem í júni 1998 greiddu iðgjöld, vegna þess að staða eða starfi sjóðfélaga hafi verið lagður niður.

Þeim sjóðfélögum, sem í júní 1998 greiddu iðgjöld tl sjóðsins er heimil áframhaldandi aðild að sjóðnum flytjist starfsemi stofnunar til ríkisins eða annars opinbers aðila enda ábyrgist launagreiðandi skuldbindingar vegna lífeyris til sjóðsins í samræmi við samþykktir.

Óheimilt er að veita móttöku iðgjalda vegna annarra frá 1. júlí 1998 sbr. lög nr. 129 frá 1997.



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00