Beint á leiðarkerfi vefsins

Leiðbeiningar um afgreiðslu iðgjalda til V-deildar

Skilagreinum til V-deildar LSS skal skila til :
Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Sigtúni 42
105 Reykjavík

Iðgjöld skulu lögð inn á reikning:
Bankareikningur nr. 0338-26-1121
Arion banki
Kt. 491098-2529

Á skilagreinum þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Nafn, kennitala og heimilisfang launagreiðanda.
  • Iðgjaldatímabil.
  • Dagsetning greiðslu.
  • Nafn, kennitala og iðgjald sjóðfélaga.
  • Framlag launagreiðanda og heildargreiðsla.
  • Taka þarf fram í hvaða deild LSS iðgjöldin skuli fara (V-deild).
  • Lífeyrissjóðsnúmer V-deildarinnar 683 er fyrir 11,5% mótframlag.
  • Lífeyrissjóðsnúmer V-deildarinnar 685 er fyrir 8% mótframlag.

Aðild
Allir sem eiga skylduaðild að A-deild LSS, geta fært sig yfir í V-deild(sjá leiðbeiningar um afgreiðslu iðgjalda í A-deild LSS) .

V-deild LSS er að auki opin öllum þeim sem ekki eiga skylduaðild að öðrum sjóði samkvæmt kjarasamningum, lögum eða ráðningarsamningi.

V-deildin er einnig opin öllum sem vilja nota viðbótarlífeyrisiðgjald til aukinnar samtryggingar lífeyrisréttinda.

Iðgjöld
Í V-deild er lágmarks iðgjald 12% af öllum launum. Allt iðgjald umfram 10% verður viðbótariðgjald

Hlutur sjóðfélaga er 4% en að jafnaði er mótframlagið ýmist 11,5% eða 8%.

11,5% er mótframlag launagreiðenda fyrir alla starfsmenn sem eiga skylduaðild samkv. kjarasamningum að LSS.

8% er að jafnaði mótframlag launagreiðenda vegna annarra sjóðfélaga, þ.e. þeirra sem ekki eiga skylduaðild að LSS.

Sjóðfélagar sem skila meiru en 12% af launum í V-deild geta valið hvernig þeir ráðstafa viðbótariðgjaldinu.

Viðbótariðgjaldinu geta sjóðfélagar svo varið til að auka sérstaklega einhver grunnréttindi í samtryggingarvernd V-deildar eða sett í séreignardeild.

Grunnréttindin skiptast í ellilífeyri, örorkulífeyri og makalífeyri. Þau er unnt að hámarka með því að ráðstafa viðbótariðgjaldi til einhvers þeirra í einhvern tíma. Sjóðfélaginn getur t.d. ákveðið að auka sérstaklega makalífeyrisréttindi með greiðslu viðbótariðgjalds að öllu leyti eða að hluta í nokkur ár síðan breytt áherslu með því að auka örorkutryggingarverndina t.d. í 5 ár og að lokum hámarkað ellilífeyri í samtryggingunni eða sett viðbótariðgjaldið í séreignarsparnað eða sambland af hvoru tveggja.

Sjóðfélagi þarf að tilkynna skriflega til LSS um ráðstöfun (skiptingu) viðbótariðgjalds (umfram 10% af launum). Sé það ekki gert er öllu iðgjaldinu ráðstafað sjálfkrafa í grunnréttindi í V-deild.

Skilagreinar
Skil á kjarasamnings- eða ráðningarsamningsbundnu 15,5% iðgjaldi í V-deild skulu gerð í einu lagi.

Mikilvægt er að halda aðgreindum á skilagreinum þeirra sem greiða 15,5% frá þeim sem greiða 12% eða aðra prósentutölu svo að LSS geti deilt mótframlaginu rétt á sjóðfélagann.

Öðrum viðbótariðgjöldum (viðbótarlífeyrissparnaði) í V-deild þarf að skila á sér skilagrein.



Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00