Beint á leiðarkerfi vefsins

Leiðbeiningar um afgreiðslu iðgjalda til A-deildar

 

Skilagreinum til A-deildar LSS skal skila til :
Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Sigtúni 42
105 Reykjavík

Iðgjöld skulu lögð inn á reikning:
Bankareikningur nr. 0338-26-1121
Arion banki
Kt. 491098-2529


Á skilagreinum þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Nafn, kennitala og heimilisfang launagreiðanda
  • Iðgjaldatímabil
  • Dagsetning greiðslu
  • Nafn, kennitala og iðgjald sjóðfélag
  • Framlag launagreiðanda og heildargreiðsla
  • Taka þarf fram í hvaða deild LSS iðgjöldin skuli fara (A-deild)
  • Lífeyrissjóðsnúmer deildarinnar er 680

Aðild
Allir starfsmenn sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja þeirra, sem og byggðasamlaga sem eru í stéttarfélagi opinberra starfsmanna, eiga skylduaðild að A-deild LSS enda sé í gildi kjarasamningur þar um. Um er að ræða öll aðildarfélög BSRB og BHM auk Félags íslenskra leikskólakennara. Nánast öll sveitarfélög landsins hafa formlega staðfest kjarasamninga við viðkomandi stéttarfélög.

Framkvæmdastjórar sveitarfélaga og stjórnendur stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélaga eiga einnig rétt til aðildar að A-deild. Sveitarfélagið þarf formlega að samþykkja slíka tilhögun.

Sjóðstjórn er heimilt að veita starfsmanni aðild að A-deild sem ekki á rétt til aðildar samkvæmt framangreindu. Sjóðstjórn hefur samþykkt þá megin reglu að þeir sem áður voru starfsfólk sveitarfélags geti haldið aðild sinni í A-deild óbreyttri þó svo að rekstrarform starfseminnar hafi breyst.

Ef starfsmenn eru áfram aðilar að stéttarfélagi sem á aðild að BSRB eða BHM og starfsemin er á forræði sveitarfélags hefur stjórn LSS samþykkt umsóknir vinnuveitenda um aðild þeirra að A-deild. Viðkomandi launagreiðandi þarf að hafa undirgengist skuldbindingar sjóðsins annað hvort með kjarasamningi eða yfirlýsingu sem hefur ígildi kjarasamnings.

Þær starfsstéttir sem áttu skylduaðild að þeim lífeyrissjóðum sveitarfélaga sem LSS rekur í dag, geta átt skylduaðild að A-deild LSS ef skilyrði um áframhaldandi aðild að hinum eldri lífeyrissjóðum eru ekki uppfyllt.

Þeim sem eiga aðild að A-deild er leyfilegt að færa sig yfir í V-deild með skriflegri tilkynningu til sjóðsins. Við slíka færslu á fólk rétt á því að flytja með sér iðgjöld síðustu 12 mánaða.

Ef iðgjöld eru greidd í V-deild er ekki heimilt að færa sig aftur í A-deild.

Sjóðfélagar geta ekki bæði átt aðild að A-deild LSS og hinum eldri lífeyrissjóðum vegna sama starfs hjá sama launagreiðanda.

Ef unnin eru tvö sjálfstæð störf hjá sama launagreiðanda, er mögulegt að eiga rétt til aðildar bæði hjá A-deild LSS og hinum eldri lífeyrissjóði. Hvert tilfelli þarf þó að meta fyrir sig til að skera úr um rétt viðkomandi.

Starfsfólk sem starfar hjá tveimur launagreiðendum þar sem annar þeirra tryggir starfsfólk sitt hjá A-deild LSS en hinn hjá einum hinna eldri lífeyrissjóða, skal greiða iðgjöld af launum hvors starfs fyrir sig samkvæmt þeim reglum sem eiga við í hvoru tilviki.

Iðgjöld
Iðgjöld skulu greidd til A-deildar LSS af heildarlaunum viðkomandi. Allar skattskyldar tekjur teljast til iðgjaldastofns svo sem laun fyrir dagvinnu, yfirvinnu, biðlaun, starfslaun, nefndarlaun, stjórnarlaun, greiðslur, fríðindi, hlunnindi og önnur ígildi launa.

Séu ökutækjastyrkir, dagpeningar og fæðispeningar endurgreiðsla fyrir útlagðan kostnað, teljast þær ekki til gjaldstofns.

Iðgjald í A-deild eru 16% af heildarlaunum. Hlutur launþega er 4% og mótframlag launagreiðanda er 12%.

Greiðsla iðgjalda er fyrst leyfileg næsta mánuð eftir 16 ára afmælisdag, og þeim skal ljúka í lok þess mánaðar er viðkomandi á 70 ára afmæli.

Iðgjöld þurfa að berast til sjóðsins ekki síðar en 10 dögum frá útborgun launa, hvort sem þau eru greidd fyrirfram eða eftirá. Eindagi er síðasti dagur sama mánaðar. Berist greiðslur eftir eindaga reiknast á þær dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

Í skilagrein skal tilgreina 4% framlag hvers sjóðfélaga en mótframlagið má koma í einni samtölu.



Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00