Beint á leiðarkerfi vefsins

Úrræði vegna greiðsluvanda


Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur ákveðið að taka upp leiðbeinandi vinnureglur vegna þeirra einstaklinga sem lenda í greiðsluvanda og eru með lífeyrissjóðslán hjá sjóðnum. Reglurnar eru samdar af vinnuhópi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða. 

Frysta lán
Einstaklingar sem komnir eru í greiðsluerfiðleika eða sjá fram á lenda í greiðsluerfiðleikum,eiga möguleika á að „frysta" lífeyrissjóðslán sín í þrjá til tólf mánuði. Frysting felur það í sér að fresta greiðslum á afborgunum, verðbótum og vöxtum. LSS vekur athygli á því að „frysting" á láni, er leið sem hentar þeim sem sjá fram á tekjuskerðingu eða þurfa aukið greiðslurými tímabundið. Þegar frystingu lýkur og greiðslur hefjast að nýju, bætist það sem fryst var við höfuðstól lánsins og dreifist á þá gjalddaga sem eftir eru á láninu. Lánið er eftir sem áður bundið vísitölu neysluverðs og tekur breytingum í samræmi við hana.

Skilmálabreyting
Rétt er að benda á að fyrir suma getur verið betra að skilmálabreyta lánum. Skilmálabreyting er, að breyta greiðslufyrirkomulagi láns úr jöfnun afborgunum í jafnar greiðslur, eða öfugt, lengja lánstímann eða fjölga gjalddögum. Ef lán er komið í vanskil þá er hægt að óska eftir því að vanskilum ásamt kostnaði verði bætt við höfuðstólinn. Jafnframt stendur einstaklingum til boða að greiða ákveðna fasta upphæð mánaðarlega. 

Einstaklingar sem eru með lán hjá sjóðnum og eru nú þegar eða sjá fram á að lenda í greiðsluvandræðum, eru hvattir til að hafa samband við sjóðinn.  



Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00