Beint á leiðarkerfi vefsins

Lánareglur

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga veitir lán samkvæmt eftirfarandi reglum:
Umsóknir eru teknar til afgreiðslu eftir því sem þær berast.

Lántökuskilyrði
Lán eru veitt til sjóðfélaga í eftirtöldum lífeyrissjóðum LSS, LsRb, LsH, LsN og LsA. Þeir sem fá greiddan lífeyri úr framangreindum sjóðum eiga einnig rétt á láni svo og starfsmenn sveitarfélaga og stofnana sem er í meirihluta í eigu þeirra, þótt þeir greiði ekki iðgjöld til sjóðsins.
Skilyrði fyrir lánsúthlutun er að umsóknareyðublöð séu útfyllt á fullnægjandi hátt og fullnægjandi gögnum skilað.

Lánsupphæð
Lánsupphæð takmarkast af veðhæfi eignar og greiðslugetu lántaka, þó að lágmarki kr.500.000.
Lántaki skal skila greiðslumati banka vegna lánsumsóknar til staðfestingar á greiðslugetu.
Lánstími er 5 til 40 ár að vali lántakanda. Lántakandi getur valið milli láns með jöfnum afborgunum og láns með jöfnum greiðslum vaxta og afborgana (jafngreiðslulán) (lesa meira.... ). Gjalddagar á ári eru 12.
Lán eru veitt með breytilegum vöxtum eða föstum vöxtum skv. ákvörðun stjórnar og verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar lána. Breytilegir vextir eru endurskoðaðir mánaðarlega. Breytilegir vextir sjóðfélagalána taka breytingum 15. hvers mánaðar og eru 0,60% hærri en meðalávöxtun í síðustu þrjá almanaksmánuði á nýjasta flokki Íbúðabréfa til 30 ára (HFF150644) í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Breytilegir vextir verða þó ekki lægri en 4,2%. Fastir vextir eru 4,5%.

Lántakandi greiðir lántökugjald sem er 1% af lánsfjárhæð auk þess sem hann greiðir kostnað við stimplun, þinglýsingu og mat á veðsettum eignum. Lántakandi greiðir einnig innheimtukostnað af afborgunum skuldabréfs hverju sinni.

Fasteignaveð
Aðeins er lánað gegn veði í íbúðarhúsnæði í eigu lántaka og miðast veð í íbúðarhúsnæði við allt að 65% af fasteignamati. Veðsetning skal þó aldrei fara yfir 100% af brunabótamatsverði viðkomandi eignar. Sjóðurinn getur skert lánsupphæð eða fellt lánveitingu niður með öllu ef fasteignamat hins framboðna veðs er lægra en 3 milljónir. Sama gildir ef eignir eru mjög gamlar eða ef þær eru á markaðssvæðum þar sem hús eru ill- eða óseljanleg.

Sé fasteignamat ekki talið gefa rétta mynd af verðmæti eignarinnar, þ.e. að markaðsverð sé hærra/lægra, áskilur sjóðurinn sér rétt til sjálfstæðs mats á eigninni á kostnað lántaka. Ef sjóðurinn telur þörf á frekari upplýsingum um fasteign, er honum jafnframt heimilt að krefjast fyllri gagna áður en til lánveitingar kemur.
Stjórn sjóðsins er heimilt að víkja frá þessum reglum, ef markaðsverð eigna gefur tilefni til þess. Veðsetning getur þó aldrei verið hærri en 75% af metnu markaðsvirði eignar.
Lán eru veitt gegn veði í íbúðum sem háðar eru kvöðum um félagslegar íbúðir ef kaupskylda sveitarfélags er fallin niður og eignin uppfyllir að öðru leyti kröfur lífeyrissjóðsins.
Hús í smíðum telst veðhæft sé lagt fram fokheldisvottorð og brunatryggingarvottorð ásamt sölumati löggilts fasteignasala, og er þá miðað við 55% matsupphæðar.


Fylgiskjöl
Þessi gögn þurfa að berast skrifstofu sjóðsins með lánsumsókn:

  • Nýtt veðbókarvottorð
  • Greiðslumat frá banka
  • Fasteigna- og brunabótamat. (Verðmat fasteignasala ásamt brunatryggingarvottorði ef hús er í smíðum)
  • Síðustu kvittanir fyrir afborgunum af lánum skv. veðbókarvottorði. Kvittanir sýni eftirstöðvar með verðtryggingu
  • Afrit af þinglýstum kaupsamningi hafi eign skipt um eigendur á síðustu 2 árum

• Veðleyfi, sé þess þörf vegna áhvílandi skulda.

 

Kostnaður

Lántakandi greiðir lántökugjald sem er 1% af lánsfjárhæð auk þess sem hann greiðir kostnað við stimplun, þinglýsingu og mat á veðsettum eignum.  Lántakandi greiðir einnig innheimtukostnað af afborgunum skuldabréfs hverju sinni.

Greiðsluseðill                      kr.   300

Tilkynning í heimabanka     kr.   150 án greiðsluseðils                                 

Veðflutningur:                     kr. 2.400

Ítrekun                              kr.    400                       

Skilmála-/skuldbreyting:      kr. 1.800

Aðvörun                              kr.    500                        

Skilyrt veðheimild:               kr. 1.500 

Reglur þessar gilda um ný lán frá 17.02.10 og eru háðar fyrirvaralausum breytingum af hálfu stjórnar sjóðsins.  Útlánareglur skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en einu sinni á ári.

Lánareglur LSS, samþykktar á stjórnarfundi LSS 17. febrúar 2010. Sjá hér.
Ef greiða skal upp lán er bankareikningur eftirfarandi:
0334-26-051982
kt. 491098-2529


Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00