Sjóðfélagalán
LSS veitir lán til sjóðfélaga í eftirtöldum lífeyrissjóðum LSS, LsRb, LsH, LsN, LSK og LsA. Þeir sem fá greiddan lífeyrir úr framangreindum sjóðum eiga einnig rétt á láni svo og starfsmenn sveitarfélaga og stofnana sem er í meirihluta í eigu þeirra óháð aðild að sjóðnum. Lánstími lífeyrissjóðslánanna er 5 - 40 ár, að vali lántaka. Hægt er að velja á milli láns með jöfnum afborgunum og láns með jöfnum greiðslum vaxta og afborgana. Sjá skýringar vegna lána.
Lán eru annaðhvort veitt með breytilegum vöxtum eða föstum vöxtum. Lánin eru verðtryggð m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar lána. Breytilegir vextir eru endurskoðaðir mánaðarlega og tekur breytingin gildi þann 15. hvers mánaðar. Fastir vextir eru alltaf þeir sömu, út líftíma lánsins. Sjá vexti
Hægt er að greiða inn á lánin eða greiða þau upp hvenær sem er. Athygli skal vakin á því að enginn aukakostnaður er greiddur ef lántakandi óskar eftir því að greiða upp lánin.
Ef greiða skal upp lán er bankareikningur eftirfarandi:
0334-26-051982
kt. 491098-2529
Tengill yfir á lánaupplýsingar og eyðublöð fyrir lánsumsókn hér
Leit
Mynd
Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00









