Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
ÁRSFUNDIR SJÓÐA Í REKSTRI LSS 2013
Á næstu vikum halda lífeyrissjóðir í rekstri LSS ársfundi sína og kynna fyrir sjóðfélögum sínum, launagreiðendum og viðkomandi stéttarfélögum afkomu sína. Eftirfarandi er listi yfir ársfundi sjóðanna, en þeir eru auglýstir nánar í fjölmiðlum fyrir fundina sem og á heimasíðum þeirra.
Ársfundur Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar 2013 verður haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 15.00, í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, Húsavík
Ársfundur Lífeyrissjóður Neskaupstaðar 2013 verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 12.00 í Egilsbúð á Neskaupstað
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga 2013 verður haldinn þriðjudaginn 21. maí kl. 16.30, í sal Bandalags háskólamanna að Borgartúni 6, 3.hæð, Reykjavík.
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2013, verður haldinn miðvikudaginn 22. maí kl. 16.00 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík.
Ársfundur Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013 verður haldinn fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 16.00, í Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði.
Ársfundur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar verður haldinn föstudaginn 24. maí kl. 12.00, í Bæjarþingsalnum á skrifstofum Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, Akranesi.
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2013, verður haldinn mánudaginn 27. maí kl. 16.00, í Fannborg 2, Kópavogi
HEIMILD TIL AÐ SÆKJA UM ÚTTEKT Á SÉREIGNARSPARNAÐI OPNUÐ Á NÝ
Opnað hefur verið fyrir útgreiðslu séreignarsparnaðar á ný og gildir sú heimild frá 1. janúar 2013 til 1. janúar 2014.
(Nánar)
Frekari upplýsingar má sjá á vef Arionbanka
AFKOMA LSS KYNNT Á ÁRSFUNDI
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga 2012 var haldinn fimmtudaginn 8. maí kl. 16.00, í fundarsal Sambands íslenskra sveitarfélaga í Borgartúni 30, Reykjavík.
Varaformaður stjórnar sjóðsins, Garðar Hilmarsson, bauð fundargesti velkomna og flutti skýrslu stjórnar. Jón G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, kynnti afkomu sjóðsins í ársreikningi, tryggingafræðilega athugun og fjárfestingastefnu. Einnig kynnti hann breytingar á samþykktum.
Hægt er að nálgast gögn sem lögð voru fram á fundinum ásamt fundargerð á eftirfarandi krækjum:
Fjárfestingarstefna LSS fyrir árið 2012 (pdf)
Samþykktir Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
EFTIRLAUNASJÓÐUR STARFSMANNA HAFNARFJARÐARKAUPSTAÐAR
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (LSS) tók við daglegum rekstri Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnafjarðarkaupstaðar (ESH) þann 1. apríl sl.
LSS annast allt réttindabókhald, útreikning og útborgun lífeyris ESH og hefur umsjón með öllu reikningshaldi fyrir sjóðinn, ásamt móttöku, vörslu og ávöxtun iðgjalda, sem og eignastýringu. Rekstur ESH verður þó áfram á kennitölu og undir nafni ESH.Sérstök áhersla er lögð á að LSS veiti sjóðfélögum í ESH góða þjónustu, öruggar upplýsingar og traustar ráðleggingar.
Skrifstofa LSS er til húsa í Sigtúni 42
Opið er alla virka daga milli kl. 9:00-12:00 og 12:30-16:00
105 Reykjavík
Sími: 5 400 700
Bréfsími: 5 400 701
Netfang: lss(hjá)lss.is
LSS rekur á sama formi Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóð starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar, Lífeyrissjóð Neskaupstaðar, Lífeyrissjóð Akraneskaupstaðar og Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar en allir þessir lífeyrissjóðir eru svokallaðir eftirmannsreglusjóðir og hefur þeim verið lokað fyrir nýjum sjóðfélögum frá miðju ári 1998.
Stjórn Eftirlaunalaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar skipa Guðmundur Rúnar Árnason, formaður stjórnar, Fjölnir Sæmundsson og Haraldur Eggertsson. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson.
OPINN SJÓÐFÉLAGAFUNDUR Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
13. MARS,
Þriðjudaginn 13. mars, var haldinn opinn fundur fyrir sjóðfélaga Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og sjóða í hans rekstri þar sem farið var yfir rekstur og afkomu sjóðanna í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrisjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Hófst fundurinn kl. 17.00 á Grand hótel Reykjavík og var hægt að fylgjast með honum á netinu.
Hægt er að nálgast glærur fundarins hér. (pdf)
Sjá nánari upplýsingar um efni fundarins hér að neðan.
Dagskrá fundarins:
- Fundarsetning
Karl Björnsson, formaður stjórnar LSS - Kynning á LSS og sjóða í rekstri LSS
Jón G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri - Rannsóknarskýrsla Landssamtaka lífeyrissjóða
Jón G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri - Kynningarferðir sjóðsins
Jón G. Kristjánsson, framkvæmdsastjóri - Aðgerðir LSS eftir hrun
Guðmundur V. Friðjónsson, starfsmaður LSS - Sameining lífeyrissjóða í rekstri LSS
Jón G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri
OPINN SJÓÐFÉLAGAFUNDUR
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17.00
Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt síðar hér á heimasíðu LSS
Hér verður hægt að fylgjast beint með fundinum á vefnum þann 13. mars, kl. 17.00:
http://www.samband.is/um-okkur/sjodfelagafundur-lss/
Skýrsluna er að finna hér í fjórum bindum:
1. bindi (2.5 MB)
2. bindi (2.8 MB)
3. bindi (1.2 MB)
4. bindi (1.1 MB)
Umfjöllun um LSS er að finna í 26. kafla 3. bindi bls 141
Umfjöllun um LsRb er að finna í 24. kafla 3. bindi bls 97
Umfjöllun um LsA er að finna í 15. kafla 2. bindi bls 192
Umfjöllun um LSK er að finna í 23. kafla 3. bindi bls 89
Umfjöllun um LsH er að finna í 22. kafla 3. bindi bls 81
Umfjöllun um LsN er að finna í 18. kafla 3. bindi bls 43
BREYTINGAR Á LÖGUM UM SÉREIGNASPARNAÐ - FRAMLAG LAUNÞEGA LÆKKAR ÚR 4% Í 2%
Í lok síðasta ár samþykkti Alþingi lög um breytingu er varða séreignarsparnað. Heimild til að draga iðgjöld launþega frá tekjuskattstofni er nú 2% í stað 4% áður. Breytingin er tímabundin til loka árs 2014.
Hámark á framlagi launþega í séreignarsparnað er lækkað úr 4% í 2%, en greiðsla launagreiðanda á 2% mótframlagi er óbreytt. Áfram nýtur þó launþegi góðs af þeim mikilvæga ávinningi að launagreiðandi leggur fram 2%, sem jafngildir viðbótarlaunum.
Breytingin á lögunum gerir ekki kröfu til breytinga á núgildandi samningum um séreignarsparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í séreignarsparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni, nema launþeginn óski sjálfur eftir því. Það er þó almennt ekki ráðlegt vegna tvísköttunar. Iðgjöld umfram 2% eru þá skattlögð áður en þau eru lögð inn í séreignarsjóð og eru síðan skattlögð aftur þegar þau eru tekin út, eins og áður.
Breyting á þessum lögum er tímabundin og gildir til loka árs 2014. Frá og með ársbyrjun 2015 verður heimild til frádráttar iðgjalda í séreignarsparnað frá tekjuskattstofni hækkuð á ný. Launagreiðandi ber þá að hækka framlag launþegans á ný í 4%, nema launþeginn óski annars.
Ítarlegri upplýsingar er að fá hér:
Tilkynning frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Auglýsing frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
LÖGFESTING Á GREIÐSLUSKYLDU LAUNAGREIÐENDA TIL VIRK - STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐS
Lögfest hefur verið að allir launagreiðendur beri að greiða 0,13% af heildarlaunum allra starfsmanna sinna til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs frá og með 1. september n.k. - þ.e. miðað við iðgjaldastofn septembermánaðar. Fram að þessum tíma hefur einungis verið kveðið á um greiðsluskyldu í kjarasamningum en nú nær hún til allra launamanna samkvæmt lögum, þar með talið sjálfstæðra atvinnurekenda og þeirra sem ekki eru félagsmenn stéttarfélaga.
Um er að ræða breytingu á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og er málsgreinin um iðgjald launagreiðenda til VIRK svohljóðandi:
Iðgjald launagreiðanda, þ.m.t. þeirra sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs skal vera 0.13% af iðgjaldsstofni skv. 1.mgr.3.gr. og skal reiknast í fyrsta sinn af iðgjaldsstofni septembermánaðar 2011. Iðgjaldið veitir réttindi til þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Launagreiðanda skv. 1. málsl. er skylt að standa skil á iðgjaldinu til viðkomandi lífeyrissjóðs með sama hætti og gildir um lífeyrisiðgjald, sbr. 2. mgr. 7. gr. Lífeyrissjóðir ráðstafa iðgjaldinu til VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og skal fara eftir þeim ákvæðum sem almennt gilda í þeim innheimtusamningum sem gerðir hafa verið milli aðila.
Frá og með 1. september nk. ber því lífeyrissjóðum að innheimta iðgjald til VIRK vegna allra launamanna þar með talið sjálfstæðra atvinnurekenda og þeirra sem ekki eru félagsmenn stéttarfélaga.
ÁRSFUNDUR LSS 2011
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfmanna sveitarfélaga fór fram í gær 26. maí 2011, í húsakynnum BHM að Borgartúni 6. Karl Björnsson, formaður sjóðsins, ávarpaði fundinn og fór yfir helstu tíðindi síðasta árs. Hann fjallaði m.a. um þróun ytra fjármálaumhverfis og starfsemi sjóðsins á árinu. Í máli hans kom m.a. fram að stjórnir þeirra sveitarfélagssjóða sem eru í rekstri LSS hefðu nú til umfjöllunar skýrslu sem unnin var fyrir LSS með mati á hagkvæmni þess og áhrifum að sameina að hluta eða öllu leyti sjóðina. Í því sambandi er vert að hafa í huga að sífellt meiri kröfur Fjármálaeftirlits til lífeyrissjóða kallar á aukna vinnu og fyrirsjáanlega aukningu í starfsmannahaldi. Sameining sjóðanna geti reynst mikilvægt svar við þessari þróun. Hér má sjá ræðu formannsins í heild sinni.
RAFRÆNN LAUNASEÐILL FRÁ 1. FEBRÚAR
Um síðustu mánaðarmót sendi lífeyrissjóðurinn út rafræna launaseðla beint í heimabanka lífeyrisþega í fyrsta skipti. Lífeyrisþegar geta nú nálgast launaseðla sína beint í heimabanka sína og prentað þá út eftir þörfum í stað þess að fá þá í pósti. Launaseðilinn verður tiltækur í heimabankanum í sjö ár frá lokum reikningsárs.
Þeir sem þess óska geta fengið launaseðilinn póstsendan eftir sem áður. Vinsamlega hafið þá samband við okkur í síma 5 400 700 eða sendið tölvupóst á lss@lss.is.
Launamiðar vegna skattframtals verða, eftir sem áður, sendir í pósti.
Með rafrænum launaseðli er stefnt að því að tryggja aðgengi að launaseðlum á öruggum og miðlægum stað þar sem þeir eru alltaf tiltækir.
SAMKOMULAG UM AÐLÖGUN FASTEIGNALÁNA VEGNA SKULDAVANDA HEIMILANNA
Samkomulag um nánari útfærslu aðgerða í þágu yfirveðsettra heimila í samræmi við vilja- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og lánveitenda, frá 3. desember s.l. var undirritað 15. janúar s.l.
Landssamtök lífeyrissjóða undirritaðu samkomulagið með fyrirvara um samþykki einstakra lífeyrissjóða.
Heimilum þar sem áhvílandi veðskuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar, býðst að færa veðskuldir sínar niður að 110% af verðmæti eigna. Það er skilyrði niðurfellingar skulda að umsækjandi og/eða maki hans, eftir því sem við á, séu eigendur hinna veðsettu eigna og greiðendur áhvílandi lána og að eignin sé notuð til heimilishalds umsækjanda.
Helstu efnisatriði samkomulagsins (sjá hér).
Samkomulag lánveitenda á íbúðarlánamarkaði í þágu yfirveðsettra heimila (sjá hér).
Umsóknareyðublað um 110% aðlögun fasteignalána má nálgast hér.
HEIMILD TIL FYRIRFRAMGREIÐSLU VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐAR HÆKKAR
Þann 17. september 2011 samþykkti Alþingi heimild til aukningar á úttekt séreignarsparnaðar úr 5.000.000 kr. í 6.250.000 kr. Heimildin tók gildi 1. október sl. og er úttektartímabilið allt að 15 mánuðir.
Sækja þarf um úttekt samkvæmd heimild þessari fyrir 1. júlí 2012.
Frekari upplýsingar má sjá á vef Arionbanka
(Nánar)
VILJAYFIRLÝSING UM AÐGERÐIR VEGNA SKULDAVANDA HEIMILANNA
Landssamtök lífeyrissjóða skrifuðu 3. desember sl. undir viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Yfirlýsingin er samvinnuverkefni stjórnvalda, fjármálastofnana, lífeyrissjóða og Íbúðarlánasjóðs.
Markmiðið er að skapa bærilegri aðstæður fyrir fólk og atvinnulíf og af sjálfu leiðir að slíkt skiptir líka miklu máli fyrir lífeyrissjóði landsmanna.
Frekari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu frá Landssamtökum lífeyrissjóða sem er hér.
Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér.
LIFEYRISSJÓÐIR FLÝTA FYRIR AFNÁMI GJALDEYRISHAFTA
Lífeyrissjóðir flýta fyrir afnámi gjaldeyrishafta með því að kaupa skuldabréf fyrir 88 milljarða króna Stjórnir 26 íslenskra lífeyrissjóða hafa samþykkt að kaupa ríkistryggð skuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir um 88 milljarða króna. Þetta var upplýst á sameiginlegum fréttamannafundi Seðlabanka Íslands og Landssamtaka lífeyrissjóða í morgun. (nánar)
ÁRSREIKNINGUR LÍFEYRISSJÓÐS STARFSMANNA SVEITARFÉLAGA 2009
Hægt er að nálgast ársreikning LSS fyrir árið 2009 hér
ÁRSFUNDUR LÍFEYRISSJÓÐS STARFSMANNA SVEITARFÉLAGA 2010
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 2. júní nk., kl. 17.00 í fundarsal BSRB að Grettisgötu 89, 101 Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Önnur mál löglega upp borin
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM og KÍ svo og launagreiðendur eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
LÍFEYRISSJÓÐIR DRAGA LÆRDÓM AF HRUNINU
Nefnd, sem Landssamtök lífeyrissjóða skipuðu í maí 2009 til að fjalla um hvað „lífeyrissjóðir gætu lært af þeim fjárhagslegu áföllum sem dunið hafa yfir íslenskt þjóðfélag, allt frá hruni viðskiptabankanna þriggja í byrjun október 2008", leggur til breytingar á viðskiptaháttum á verðbréfamarkaði, regluverki og starfsumhverfi lífeyrissjóða. Nefndin kynnti skýrslu sína, Lærdóm lífeyrissjóða af hruninu 2008-2009, fyrir 80-90 fulltrúum lífeyrissjóða á fundi á Grand hóteli í Reykjavík í apríl sl. (nánar)
UPPLÝSINGAR FYRIR SKATTFRAMTÖL
Launamiðar hafa verið sendir út til allra sjóðfélaga sem fengu lífeyrisgreiðslur á árinu 2009 úr LSS, LsRb, LsH, LsA og LsN.Upplýsingar um lífeyrisgreiðslur eru forskráðar í skattframtölum sem skilað er inn á netinu.
Lífeyrisþegar eru hvattir til að bera saman upplýsingar á launamiðum og upplýsingar á framtali og hafa samband við sjóðinn ef það stemmir ekki.
Lán frá LsRb og LSS eru forskráð á sundurliðunarblaði með skattframtali til hagræðingar.
Ný lán til íbúðarkaupa þarf sérstaklega að færa inn í skattframtalið, þar sem ekki er hægt að færa þau inn fyrirfram heldur verða lántakendur að ákveða hvernig þau skuli færð inn í framtalið svo rétt sé.
BREYTINGAR Á SKATTLAGNINGU Á ÁRINU 2010
Í desember síðastliðnum samþykkti Alþingi breytingar á lögum um tekjuskatt.
Frá 1.1.2010 er tekjuskatti skipt í 3 þrep. Það er á ábyrgð hvers lífeyrisþega að tilkynna í hvaða
skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. (nánar)
SEXTÁN LÍFEYRISSJÓÐIR STOFNA FRAMTAKSSJÓÐ ÍSLANDS
Þann 8. desember stofnuðu fulltrúar sextán lífeyrissjóða, innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða, formlega Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins. (nánar)
GREIÐSLUJÖFNUN VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 23. október sl. var ákveðið að greiðslujöfnun verði sett sjálfkrafa á öll verðtryggð lán með veði í fasteign frá og með gjalddaga í desember 2009. Með greiðslujöfnun mun greiðslubyrði lána verða lægri um skeið og því mögulega henta betur greiðslugetu margra í dag. Til lengri tíma litið getur greiðslujöfnun þó leitt til aukins kostnaðar vegna vaxta og verðbóta. (nánar)
TÍMABUNDIN HEIMILD TIL FYRIRFRAMGREIÐSLU Á SÉREIGNARSPARNAÐI
Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila þeim er eiga frjálsan séreignarsparnað að leysa út allt að 1. milljón króna, samanlagt úr sjóðum allra vörsluaðila. (nánar)
ENDURMAT EIGNA Í SÉREIGNALEIÐUM OG FJÁRFESTINGARLEIÐIR OPNAÐAR Á NÝ
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur lokið endurmati eigna í séreignarleiðum og því hafa fjárfestingarleiðir sjóðsins verið opnaðar að nýju. (nánar)
NÝ FJÁRFESTINGARSTEFNA Í SÉREIGN
Með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi og að teknu tillit til efnahagsástandsins var ákveðið að endurskoða fjárfestingarstefnu leiða 1 og 2 í séreign. (nánar)
RÁÐSTÖFUN FRAMTÍÐARIÐGJALDA
Eins og kom fram á heimasíðu LSS þann 16. október sl. hefur öllum iðgjöldum verið ráðstafað inná innlánsreikning sem tilheyrir hverri fjárfestingarleið sem ber vexti og er að fullu tryggður með ríkisábyrgð. (nánar)
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Lífeyrissparnaður er einn mikilvægasti sparnaður einstaklinga. Með lífeyrissparnaði leggjum við grunn að fjárhagslegu öryggi okkar í ellinni. Um leið bætum við öryggi maka okkar og barna til að mæta óvæntum áföllum eða við eigið andlát.
LSS starfar í þremur deildum í þeim tilgangi að tryggja sjóðfélögum sem besta valkosti í lífeyrismálum. Sjóðurinn skiptist í tvær sameignardeildir, almenna deild og valdeild, auk þess séreignardeild. Sjóðfélagar geta valið hvorri sameignardeildinni þeir vilja tilheyra. Þar fyrir utan eru allir sjóðfélagar hvattir til að ávaxta viðbótarsparnað í séreignardeildinni.
VIÐBÓTARSPARNAÐUR
Í samanburði við annan sparnað er viðbótarsparnaður í séreignarsjóð mjög hagstæður. Lífeyrissparnaður er skattalega hagkvæmur því inneign og lögbundið iðgjald er hvorki eignaskatts- né fjármagnstekju-skattsskyld. Hins vegar er lífeyrir framtals- og tekjuskattsskyldur þegar hann kemur til útborgunar en þá kemur persónuafsláttur einstaklinga á móti til frádráttar skatti. Skoða nánar
Fréttir
2.5.2013
Ársfundur LSS 2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 21. maí kl. 16.30, í sal Bandalags háskólamanna að Borgartúni 6, 3.hæð, Reykjavík.
3.10.2012
Vextir sjóðfélagalána LSS lækka
Frá og með 3. október lækka bæði fastir og breytilegir vextir á sjóðfélagalánum LSS.
2.3.2012
OPINN SJÓÐFÉLAGAFUNDUR
LSS og lífeyrissjóðir í rekstrarlegri umsjá hans boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17.00, í tilefni af nýútkominni skýrslu úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða.
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00












