Samanburður deilda
Í A-deild eru réttindin þekkt, fyrirfram ákveðin og hliðstæð réttindum í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Ávöxtun iðgjalda og önnur óvissa um rekstur hefur engin áhrif á réttindi sjóðfélaga. Samsetning réttindanna er valin með dæmigerðan einstakling í huga sem leggur áherslu á öflug elli- og örorkulífeyrisréttindi. Þú aflar þér jafn verðmætra réttinda ungur sem aldinn. A-deild er hiklaust valkostur fyrir þá sem komnir eru á seinni hluta starfsævinnar og fyrir þá sem leggja áherslu á öryggi.
Í V-deild fer öflun réttinda eftir aldri þeirra sem eru að greiða. V-deildin er þannig tryggingafræðilega rétt og skírskotar ef til vill aðallega til yngri starfsmanna. En V-deildin veitir einnig möguleika til að velja sér samsetningu á lífeyristryggingu sem A-deild veitir ekki. Sjóðfélaginn getur varið iðgjaldi umfram lágmarkstryggingarvernd til að bæta sérstaklega ákveðna þætti samtryggingar, s.s. elli- eða örorkulífeyrisréttindi. V-deild er hiklaust valkostur fyrir þá sem eru yngri og fyrir þá sem leggja áherslu á valfrelsi í samsetningu réttinda.
Í V-deild fer öflun réttinda eftir aldri þeirra sem eru að greiða. V-deildin er þannig tryggingafræðilega rétt og skírskotar ef til vill aðallega til yngri starfsmanna. En V-deildin veitir einnig möguleika til að velja sér samsetningu á lífeyristryggingu sem A-deild veitir ekki. Sjóðfélaginn getur varið iðgjaldi umfram lágmarkstryggingarvernd til að bæta sérstaklega ákveðna þætti samtryggingar, s.s. elli- eða örorkulífeyrisréttindi. V-deild er hiklaust valkostur fyrir þá sem eru yngri og fyrir þá sem leggja áherslu á valfrelsi í samsetningu réttinda.
Í S-deild getur sjóðfélaginn komið fyrir séreignasparnaði sínum til elliára og haft þannig bæði lífeyris- og séreignarsparnað á einum stað. Með séreignasparnaði getur hann verið viss um að hann eða erfingjar hans fá séreignina greidda í fyllingu tímans. Sparnaður í séreignadeild er ekki skattskyldur. Sjóðfélagi í S-deild sem orðinn er 60 ára getur valið að umbreyta séreign sinni í réttindi í V-deild. Þessi kostur er sérstök nýjung hjá LSS.
Samanburður á valkostum
Þessir valkostir eru útskýrðir betur undir hverri deild fyrir sig.
|
A-DEILD
|
V-DEILD
|
S-DEILD
|
|
|
Aðild:
|
|||
|
Réttur til aðildar:
|
Félagsmenn BHM og BSRB og þeir sem áttu aðild að eldri lífeyrissjóðum sveitarfélaga.
|
Ótakmarkaður.
|
Ótakmarkaður.
|
|
Iðgjald:
|
|||
|
Iðgjald sjóðfélaga
|
4% af heildarlaunum
|
4% af heildarlaunum
|
|
|
Iðgjald launagreiðanda:
|
Það sem þarf til að greiða réttindi, nú 12% af heildarlaunum.
|
11,5% af heildar-launum skv. kjarasamningi en opið öðrum sjóð-félögum sé samtal 10% eða hærra.
|
Umsamið (umfram 10% af heildarlaunum þ.e. lágmarksiðgjald)
|
|
Fyrirfram ákveðinn.
|
Breytilegur.
|
Breytilegur.
|
|
|
Upphæð ellilífeyris
|
1,9% af launum.
|
Uppsöfnun aldursbundinnar ávinnslu
|
Iðgjöld og ávöxtun þeirra.
|
|
Verðtrygging lífeyris:
|
Já.
|
Já.
|
|
|
Almennur ellilífeyristökualdur
|
65 ára.
|
65 ára.
|
65 ára.
|
|
Má flýta töku ellilífeyris:
|
Já frá 60 ára aldri.
|
Já frá 60 ára aldri.
|
Já frá 60 ára aldri.
|
|
Ef töku lífeyris flýtt
|
0,5% skerðing fyrir hvern mánuð.
|
0,45-0,65% skerðing fyrir hvern mánuð
|
Séreign greidd á a.m.k. 7 árum.
|
|
Ef töku lífeyris frestað:
|
0,8% aukning fyrir hvern mánuð
|
0,7-0,9% aukning fyrir hvern mánuð
|
Séreign greidd á umsömdum tíma
|
|
Réttur til töku lífeyris með starfi
|
Já
|
Já
|
Já
|
|
Byggir á:
|
Ellilífeyri
|
Ellilífeyri
|
Heimilt að flýta greiðslu séreignar.
|
|
Réttur til framreiknings:
|
Já
|
Já
|
Nei
|
|
Lágmarksörorka
|
40%
|
40%
|
|
|
Viðmið örorku:
|
M.v. eigið starf í 5 ár. Síðan almenn
|
M.v. eigið starf í 5 ár. Síðan almenn
|
|
|
Byggir á
|
50% ellilífeyris.
|
50% ellilífeyris.
|
Séreign sem erfist.
|
|
Réttur til framreiknings
|
Já.
|
Já.
|
|
|
Hve lengi lífeyrir:
|
Fullur í 3 ár og hálfur í 2 ár. Fullur uns yngsta barn nær 22 ára aldri
|
Fullur í 2 ár eða uns yngsta barn nær 18 ára aldri.
|
Dreifist á a.m.k. 7 ár eða þann tíma sem vantar á 67 ára aldur
|
|
Missir makalífeyris
|
Já ef ný sambúð
|
Já ef ný sambúð
|
Nei
|
|
Ef sjóðfélagi deyr
|
11.619* á mánuði verðtryggt
|
8.714* á mánuði verðtryggt
|
Séreign sem erfist
|
|
Ef sjóðfélagi öryrki
|
M.v. 100% örorku 7.500 kr á mánuði verðtryggt
|
M.v. 100% örorku 7.500 kr á mánuði verðtryggt.
|
Séreign sem erfist.
|
|
Hve lengi
|
Að 22 ára aldri
|
Að 18 ára aldri
|
Greitt á 5 árum ef barn yngra en 14 ára en ella á því sem vantar á 18 ára aldur
|
*NVT 202,4 í janúar 2001
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00












