S-deild
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (LSS) starfrækir séreignadeild sem tekur við viðbótarsparnaði. Réttur til aðildar er ótakmarkaður og því geta allir sem vilja greiða viðbótarframlög í lífeyrissjóð lagt þau í séreignadeild LSS.
Myndun séreignasjóðs: Iðgjöld sem greidd eru í S-deild eru séreign sjóðfélaga ásamt ávöxtun að frádregnum kostnaði. Hægt er að leggja fyrir 2% af launum sem iðgjald í séreignarsjóð. Launagreiðendur greiða í mótframlag 2% í séreignasjóðinn skv. flestum kjarasamningum. Þeir sem ekki eru með viðbótarlífeyrissparnað missa í raun 2% kjarabót frá vinnuveitenda. Dæmi um viðbótarsparnað
Skattalegt hagræði: Iðgjald er frádráttarbært frá tekjuskattstofni, en tekjuskattur er ekki greiddur fyrr en við útgreiðslu sparnaðarins og gerir þér kleift að fresta skattgreiðslu til efri áranna þegar persónuafslátturinn nýtist þér betur. Auk þess er viðbótarsparnaður undanþeginn fjármagnstekjuskatti og eignaskatti. Viðbótarsparnaður er ekki framtalsskyldur og lækka því t.d. ekki barna- eða vaxtabætur. Maki og börn greiða ekki erfðafjárskatt af erfðri séreign.
Sveigjanleg starfslok: Inneign í séreignasjóði auðveldar þér að draga úr vinnu áður en venjubundnum ellilífeyrisaldri er náð og að hækka lífeyri þinn fyrstu árin eftir að taka ellilífeyris hefst.
Útborgun: Verði sjóðfélagi öryrki og orkutapið sem hann verður fyrir er 100% á hann rétt á að fá lífeyrissparnað og vexti greidda út með jöfnum árlegum greiðslum á sjö árum. Ef örorkuprósentan er lægri en 100% þá lækkar árleg útborgun í hlutfalli við lækkun örorkuprósentunnar og úttektartíminn lengist samsvarandi.
Séreign sem erfist: Við andlát rétthafa fellur séreignin til erfingja hins látna og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga.
Ekki aðfararhæf: Séreign er ekki aðfararhæf og því ekki hægt að ganga að henni vegna fjárhagslegra skuldbindinga
Ábyrgðarsjóður launa: Ábyrgðarsjóður launa ábyrgist m.a. greiðslu á kröfu lífeyrissjóðs um lífeyrissjóðsiðgjöld sem fallið hafa í gjalddaga á síðustu 18 mánuðum fyrir úrskurðardag. Ábyrgðin takmarkast við greiðslu á 10% lágmarksiðgjaldi og allt að 4% viðbótariðgjald. Lög nr. 88/2003 um Ábyrgðarsjóð launa, sem fjalla um ábyrgð á iðgjöldum vegna viðbótarlífeyrissparnaðar tóku gildi 1. janúar 2004 og miðast því við að bú vinnuveitanda hafi verið úrskurðað gjaldþrota eftir þann tíma. Ef sjóðfélagar hafa vitneskju um að iðgjöld séu vangreidd þá verða þeir að tilkynna sjóðnum um það en slík tilkynning er forsenda þess að innheimta vangreiddra iðgjalda hefjist.
Hér geturðu sótt umsókn um séreignarsparnað. Umsóknir og eyðublöð s.s. umsókn um töku lífeyris þarf að prenta út (pdf skjöl), fylla vandlega út í alla reiti, skrifa undir umsóknina og senda til Kaupþings banka. Um leið og við höfum fengið skjölin látum við launagreiðanda þinn vita og sendum þér undirritaða staðfestingu til baka. Heimilisfangið er: Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum 129/1997 um lífeyrissjóði, um tímabundna fyrirframgreiðslu á séreignarsparnaði. Sjá nánar hér.
Leit
Mynd

Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00












