Beint á leiðarkerfi vefsins

Deildir

LSS starfar í þremur deildum í þeim tilgangi að tryggja sjóðfélögum sem besta valkosti í lífeyrismálum:

LSS skiptist í tvær sameignardeildir, almenna deild og valdeild, auk þess séreignardeild. Sjóðfélagar geta valið hvorri sameignardeildinni þeir vilja tilheyra. Þar fyrir utan eru allir sjóðfélagar hvattir til að ávaxta viðbótarsparnað í séreignardeildinni.


Þú gerist sjálfkrafa sjóðfélagi í A-deild LSS ef þú ert nýr starfsmaður hjá sveitarfélagi sem á aðild að LSS og félagsmaður í einhverju aðildarfélagi BHM eða BSRB.

Þú getur hvenær sem er fært þig úr A-deild í V-deild. Fyrir yngri sjóðfélaga getur verið hagkvæmast að velja strax V-deildina. Launagreiðandinn ábyrgist að greiða 12% iðgjald til viðbótar við 4% skylduiðgjald þitt. Þú getur hinsvegar ekki flutt þig úr V-deild í A-deild.

Allir sem fá greidd laun eða þóknanir frá sveitarfélagi eða stofnun sveitarfélags geta gerst sjóðfélagar í V- og S-deild LSS. Sama gildir um þá sem ekki hafa skylduaðild að tilteknum lífeyrissjóði.

Allir ættu síðan að kjósa viðbótarsparnað í séreignardeild. Þú getur bætt lífskjör þín með því að velja strax þá deild sem þér hentar.

Þitt er valið
Veldu þá deild sem þér hentar

A - deild
Réttindi sjóðfélaga í A-deild eru fyrirfram ákveðin og iðgjald hans er 4% af heildarlaunum. Iðgjald launagreiðandans er hins vegar breytilegt og aðlagað að því að standa á hverjum tíma undir réttindum sjóðfélagans (núna 12%) (L680).

V - deild
Iðgjald sjóðfélaga og launagreiðanda í V-deild ræðst af kjara- eða ráðningarsamningi. Lágmarksiðgjald er 12%, sjóðfélagi greiðir 4% og mótframlag launagreiðanda er 8% (L685). Mótframlag launagreiðanda er hinsvegar 11,5% (L683) fyrir starfsmenn í aðildarfélögum BSRB og BHM. Sjóðfélaga er heimilt að greiða viðbótariðgjald til að auka réttindi sín. Réttindi sjóðfélagans ráðast af innborguðum iðgjöldum og ávöxtun þeirra. Réttindi í V-deild eru einnig háð aldri sjóðfélagans þegar hann greiðir iðgjöldin. Reglan er einfaldlega sú að því yngri sem sjóðfélaginn er þegar hann greiðir iðgjald sitt, þeim mun meiri réttinda ávinnur hann sér. V-deild er því hiklaust góður kostur fyrir ungt fólk og þá sem sjá sér hag í valfrelsi við samsetningu réttinda.

S - deild
Iðgjöld geta komið til sem iðgjald umfram lágmarksiðgjald eða sem sérstakt viðbótariðgjald. Séreign ræðst m.a. af aldri sjóðfélaga þegar hann greiðir iðgjaldið og séreign erfist gagnstætt því sem gildir í A- og V-deild. Þess vegna ávinnast meiri réttindi fyrir sjóðfélaga í A- og V-deild en í S-deild (X686).



Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Beiðni um undanþágu frá greiðslujöfnun

Fræðsluvefur lífeyrissjóðanna 

gott-2

Launagreiðendavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Launagreiðendavefur LSS

Sjóðsfélagavefur LSS
(á eingöngu við LSS)

Sjóðsfélagavefur LSS


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Skrifstofa LSS
Sigtúni 42
105 Reykjavík
Sími: 540 0700
Netfang: lss(hjá)lss.is 
Opið alla virka daga
kl. 9.00-12.00 og 12.30-16.00